Íslenska  English
Prenta |  Senda
15.06.2010- Frábær sumar- og fjölskylduferð Prentmets í Miðdal
Prentmet stóð fyrir sinni árlegu sumar- og fjölskylduhátíð í Miðdal í landi Félags bókagerðarmanna laugardaginn 12. júní sl., sem tókst í alla staði frábærlega. Boðið var upp á gönguferð í Miðdal, leiki og sprell fyrir börn og fullorðna og á laugardagskvöldinu grillaði snilldarkokkurinn Guðmundur Ragnarsson frá Lauga-ási ofan í mannskapinn. Prentararnir og söngvararnir Ari Jónsson og  Skapti Ólafsson stjórnuðu fjöldasöng við undirleik  Davís Valdimarsonar prentsmiðs og Marinó Önundarsonar prentara. Þá söng Ari Jónsson, prentari í Prentmeti nokkrar af helstu perlum dægurlagatónlistarinnar og kvöldið endaði í góðum dansleik. Veðrið var gott á staðnum alla helgina og algjörlega logn og stöku sinnum smá rigningarúði sem var mjög góður fyrir  gróðurinn og til að hreinsa loftið og  þá litlu ösku sem var þar eftir gosið. 

Tryggvi Rúnarsson, skurðarmaður okkar, tók meðfylgjandi myndir á hátíðinni.
Skoða myndir frá Sumarferðinni



Til baka