Prentmet hefur prentað bókina LAUGAVEGURINN sem kemur út laugardaginn 19. júní, á Kvenréttindadaginn sjálfan. Bókin er gefin út af listakonunum sem stofnuðu og ráku listamannahúsið START ART um árabil við Laugaveg 12b en þær eru Anna Eyjólfsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir, Þórdís Alda Sigurðardóttir og Þuríður Sigurðardóttir. Þær eru allar alsælar með útkomuna bókarinnar.
Bókin fjallar um það hvernig Laugavegurinn varð til og af hverju nafn hans er dregið og rakin er saga þvottakvennanna sem örkuðu hann veglúnar með þungar byrðar inn í Þvottalaugarnar í Laugardal. Vorið 2009, á Listahátíð í Reykjavík, efndi START ART til viðamikils listgjörnings í minningu þvottakvennanna. Þessi bók fjallar í máli og myndum um þennan gjörning sem fjölmargir listamenn komu að, um sögu þvottakvennanna og Þvottalaugarnar og um þá hreinsun sem okkur er nauðsynleg á hverjum tíma. Meðal höfunda efnis eru frú Vigdís Finnbogadóttir, Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur, og heimspekingarnir Sigríður Þorgeirsdóttir og Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir. Bókin er ríkulega myndskreytt ljósmyndum er sýna Þvottalaugarnar, listaverkin sem urðu til og listgjörninginn sem varð að veruleika með þátttöku borgarbúa á öllum aldri.
Útgáfu bókarinnar verður fagnað við árlega athöfn Kvennakirkjunnar inn við Þvottalaugarnar þann 19. júní kl. 20 og verður til sölu á Café Flóra á sérstöku tilboðsverði í tilefni útgáfunnar og Kvenréttindadagsins.Eftir það mun Smekkleysa, Laugavegi 35, sjá um dreifingu.