Nú geta börn sem ferðast um heiminn með Icelandair notið þess að borða matinn sinn úr fallegum öskjum og leikið sér og litað myndir úr ævintýraheimi söguhetjunnar Helga.
,,Árið 1976 kom bókin Helgi skoðar heiminn fyrst út. Tilurð bókarinnar var sú að Halldór teiknaði myndirnar en Njörður P. Njarðvík skrifaði sögu við þær. Bókin markaði tímamót í íslenskri barnabókaútgáfu og í kjölfarið sigldu metnaðarfyllri verk en sést höfðu. Það er fyrst eftir útkomu þessa verks að hægt er að segja að útgáfa íslenskra myndabóka, það er barnabóka þar sem jöfn áhersla er lögð á myndir og texta, hefjist fyrir alvöru.
Teikningar Halldórs eru skemmtilegar og hlýlegar skopmyndir sem sýna Helga litla kanna veröldina. Boðskapur sögunnar er að heimurinn sé fullur af lífi. Manneskjurnar eiga veröldina ekki ein. Dýr og vættir náttúrunnar eiga sama rétt og við og okkur ber að sýna tillitsemi og vináttu. Sá boðskapur á jafnmikið erindi til barna nú og fyrir 30 árum „ (Höfundur MT -síða Listmunasala Gallerý Flold).