
Nú eru allir grunnskólar landsins að fá í hendurnar litabókina um Ýmu
tröllastelpu ,,Ég vil fá að vera ég sjálf“ sem er ætluð öllum 6 ára
börnum á Íslandi. Bókin er gefin út af Prentmeti í samstarfi við
Olweusarverkefnið gegn einelti og samtökin Regnbogabörn. Bókin er gjöf
frá Prentmeti og höfundur bókarinnar er Ingibjörg Steinunn
Ingjaldsdóttir annar eigandi og starfandi stjórnarformaður Prentmets.
Tilgangurinnn er fyrst og fremst að vekja alla til umhugsunar um hve
mikilvægt það er að öll börn þori að vera – og geti verið – þau sjálf.
Einnig að þau njóti sín í leik og starfi á eigin forsendum.
Síðastliðinn vetur var send út könnun til allra grunnskóla landsins þar
sem kennarar 1. bekkjar voru beðnir um að taka þátt og miðla reynslu
sinni af kennsluefninu um Ýmu tröllastelpu. Þátttakan var mjög góð og
niðurstöður sýna að almennt er efnið notað í kennslustundum eins og
lífsleikni og á bekkjarfundum. Eineltishringurinn er mikið notaður í
umræðunni um Ýmu. Efnið hjálpar nemendum að setja sig í spor annarra og
er gott umræðuefni um líðan í bekknum, gott viðfangsefni um
fjölmenningu og vel til þess fallið að ræða það að engir tveir eru
eins. Þá er bókin skemmtilegt ævintýri og hægt er að lita og vinna með
hana.
Við sem erum fullorðin berum mikla ábyrgð á velferð barnanna. Umræðan í
bekknum um Ýmu vonum við að styrki kennara til að axla betur þá ábyrgð.
Ýma er einskonar tákngervingur fyrir markmið og tilgang þeirra sem
berjast gegn einelti. Hún fer aðeins fram á að vera hún sjálf, sama
hvað aðrir segja um hana. Aðferðafræði Ýmuverkefnisins og
Olweusarverkefnisins á erindi alstaðar í samfélaginu bæði í skólakerfinu
öllu ásamt vinnustöðum. Okkur öllum þarf að líða vel í umhverfi okkar
svo að við náum að blómstra og sýna sem mestan árangur í leik og
starfi.
Smelltu hér til að niðurhala pdf útgáfu af bókinniSmelltu hér til að niðurhala pdf útgáfu af leiðbeiningum til kennara