Stanzasafn
Reiknivél
Skil á efni
ftp svæði
Þegar kemur að grafískri vinnslu vakna ótal spurningar. Möguleikarnir á því að gerast hönnuður hafa stóraukist fyrir marga með aukinni tölvunotkun og aðgengi að hugbúnaði. Photoshop sem er virtasti hugbúnaðurinn á sviði myndvinnslu er orðinn það útbreyddur að á meðal almennings, og þá sérstaklega ungu kynslóðarinnar, hefur myndast hugtakið “að photoshoppa” þegar augun rýna í fagmannlega unnar auglýsingar eða klaufalega samsettar grínmyndir á netinu ætlaðar til gamans. Við hjá Prentmet gerum okkar allra besta við að fylgja þróuninni með það að leiðarljósi að bjóða viðskiptavinum okkar uppá útbreiddari þjónustu.
Hvað er Adobe í dag ?Adobe fyrirtækið hefur gengið í gegnum miklar breytingar og sótt í sig veðrið s.l. ár. Flestir kannast við vinsælasta hugbúnaðinn þeirra sem er Adobe Reader og er einn slíkan að finna í flestum tölvum í dag. Hann sýnir PDF skjöl en ekkert meir og er þ.a.l. ómissandi fyrir þá sem hafa ekki aðgang að stærri grafískum hugbúnaði. Acrobat býður upp á meiri og fjölbreyttari vinnslu nú en nokkru sinni fyrr og hentar vel í alls kyns verkefni eins og t.d. gerð eyðublaða. InDesign umbrotsforritið er mjög auðvelt í notkun og býður upp á marga skemmtilega möguleika, það er mjög gott að vinna með letur í því. Illustratorinn þróast mikið og einn skemmtilegasti kosturinn í CS2 útgáfunni er trace sem gefur notandanum möguleika á að rekja útlínur úr rasta s.s. myndum. Photoshop er að sjálfsögðu sífellt í þróun og er nánast ómissandi fyrir þá sem stunda grafíska vinnslu og vilja vinna gæðaverk. Þar að auki keypti Adobe keppinaut sinn Macromedia sem bauð m.a. uppá Freehand, Flash, Dreamweaver, Fireworks og Shockwave. Fireworks náði aldrei að keppa við Photoshop í gæðum og vinsældum en Freehand hafði vissulega yfirburði yfir Illustrator. Þar að auki voru Macromedia mun sterkari þegar kom að vefvinnslu og Go Live frá Adobe komst aldrei nálægt Dreamweaver. Flash og Shockwave voru líka búin að skipa sér sess á vefmarkaðinum sem mest notuðu staðlarnir á sínum sviðum.Eftir samrunann er orðin til samsteypa sem getur betur tekist á við komandi verkefni og þróun í framtíðinni. Adobe er núna ráðandi aðili á prentmarkaði, auglýsingamarkaði, vefhönnunarmarkaði og afar vinsæll meðal hins almenna netnotanda. Spurninginn er hvort þeir gefi ekki í með After Effects og tryggi sér sess meðal sjónvarps og kvikmyndagerðarmanna.