Íslenska  English
Prenta |  Senda

FTP svæði - Leiðbeiningar fyrir Windows notendur


Með My computer í Windows XP

1.       Opnaðu My computer glugga

2.       Sláðu inn ftp.prentmet.is í address bar og veldu enter

3.       Afritaðu gögnin af tölvunni þinni yfir á rót ftp svæðisins

Með Computer í Windows Vista

1.       Opnaðu Computer glugga

2.       Sláðu inn ftp.prentmet.is í address bar og veldu enter

3.       Afritaðu gögnin á tölvunni þinni yfir á rót ftp svæðisins.

Með Internet Explorer 7 og 8

1.       Opnaðu Internet Explorer glugga

2.       Sláðu inn ftp.prentmet.is í address bar og veldu enter
(Þér birtist þá hvítur textagluggi með fyrirsögn FTP root)

3.       Veldu Page takkan í efra hægra horni Internet Explorer

4.       Veldu úr valmyndinni Open FTP site in Windows Explorer

5.       Afritaðu gögnin af tölvunni þinni yfir á rót ftp svæðisins

Vinsamlegast látið sölumann vita að gagnaflutningi loknum.

Algengar spurningar:

Q: Hvernig afrita ég gögnin af tölvunni minni yfir á rót ftp svæðisins?
A: Þú getur annað hvort dregið skjölin af tölvunni þinni yfir á FTP gluggann og sleppt þeim þar eða þá með því að velja copy á skjölin þín og hægri smella á autt svæði í FTP glugganum og velja paste þar.

Q: Eru gögnin mín örugg inná FTP svæðinu?
A: Já. Gestir geta aðeins afritað gögn inná FTP svæðið en ekki náð í gögn af því.

Q: Ég opnaði FTP svæðið ykkar í Internet Explorer en sé bara texta og linka, get ekkert afritað inná svæðið.
A: Skoðaðu leiðbeiningar með Internet Explorer 7 og 8. Opna þarf FTP svæðið í My Computer til að geta sent inn skjöl.