Íslenska  English
Prenta |  Senda

Gátlisti

Fyrir hönnuði og aðra sem vinna myndir fyrir prentverk

  1. Tryggja að skjárinn sem unnið er á sé kvarðaður.
  2. Tryggja að þeir prófílar sem á að nota séu til staðar á tövunni.
  3. Setja Color settings í Photoshop upp á réttan hátt (sjá leiðbeiningar).
  4. Best er að vinna myndir í RGB. Huga sérstaklega að grájafnvægi í myndum.
  5. Umbreyta RGB myndum í CMYK áður en þær eru sendar til prentsmiðju.
  6. Muna að CMYK er ekki bara CMYK. Það skiptir máli að nota rétta prófíla þegar RGB myndum er breytt í CMYK.
  7. Hengja alltaf RGB prófíla við (embedd) allar RGB skrár.
  8. ALLS EKKI hengja CMYK prófíla við CMYK skrár.
  9. Muna að þó kvarðaður skjár geti sýnt nokkurnveginn hvernig myndir komi til með að prentast er best að biðja prentsmiðjuna um að keyra út hágæða prúf á pappír til að sjá nokkuð nákvæmlega hvernig myndir komi út.
  10. Muna að leiðbeiningarnar á heimasíðu Prentmets eiga við forvinnslu fyrir prentun á húðaðan, hvítan pappír. Ef ætlunin er að prenta á pappír sem ekki fellur undir þessa skilgreiningu er ráðlegt að fá upplýsingar um rétta CMYK prófíla hjá starfsmönnum Prentmets.