Stanzasafn
Reiknivél
Skil á efni
ftp svæði
Prentmet mælir með notkun á þessum litaprófílum fyrir vinnslu á prentgripum sem prenta skal í Prentmet.Nánari upplýsingar um litaprófíla og litstýringu er að finna hér.
RGB prófíllinn heitir eciRGB_v2.icc og hann er best að nota sem vinnslulitrúm (Working space).Hlaða niður eciRGB_v2.iccVistunarleiðbeiningar:MAC: HD/Library/ColorSync/Profiles/RecomendedPC: C:\WINDOWS\system32\spool\drivers\color
CMYK prófíllinn heitir ISOcoated_v2_eci.icc og málið verður örlítið flóknara þegar kemur að honum því hvaða CMYK prófíll er notaður ræðst alfarið af pappírsgerðinni og prentuninni. Þessi prófíll er ætlaður prentun á húðaðan pappír og hann er með 320% TIC sem er nægjanlegt fyrir góða svertu í skuggum og ætti að vera öruggur í langflestum tilfellum.Hlaða niður ISOcoated_v2_eci.iccVistunarleiðbeiningar:MAC: HD/Library/ColorSync/Profiles/Recomended PC: C:\WINDOWS\system32\spool\drivers\colorEf prenta á óhúðaðan pappír er best að nota annan prófíl og þá er best að setja sig í samband við okkur og fá ráð.
Auk þess að nota rétta litaprófíla þarf að hafa réttar litastillingar á hönnunarforritunum. Í stað þess að setja allar stillingar inn handvirkt getur þú sótt forvaldar Prentmets litstillingar hér að neðan og komið þeim fyrir í tölvunni hjá þér.Hlaða niður Prentmet_Litastillingar.csfVistunarleiðbeiningar:MAC: HD/Library/ColorSync/Profiles/Recomended PC: C:\WINDOWS\system32\spool\drivers\color