Íslenska  English
Prenta |  Senda

Mesta breidd sem hugsast getur í prentverki á einum stað.


Offsetprentun

Með fyrsta flokks vélabúnaði og reynslumiklu starfsfólki býður Prentmet hágæða prentun á listaverkabókum, umbúðum, bæklingum, möppum og nafnspjöldum. Offsetprentun hentar einnig vel fyrir allar gerðir kynningarefnis og markpósts.

Stafræn prentun

Hægt er að fá nánast alla prentþjónustu með stafrænni prentun. Stafræn tækni gefur ekki aðeins kost á skjótri afgreiðslu, þegar um smærri upplög er að ræða, heldur einnig prentun risaplakata og auglýsingaborða af nánast ótakmarkaðri stærð.

Umbúðir

Prentmet getur mætt ýtrustu kröfum á sviði umbúðaprentunar. Við veitum ráðgjöf við vöruþróun, formhönnun, prentun, hráefni og allt annað sem varðar umbúðir. Einnig getum við boðið styttri afgreiðslutíma og hagstætt verð.