Íslenska  English
Prenta |  Senda

Umhverfisstefna

Prentmet leggur áherslu á að sýna fyrirhyggju sem leiðir til þess að starfsemi á vegum fyrirtækisins hafi lágmarks röskun á náttúrunni í för með sér. Prentsmiðjan vinnur skipulega að umhverfisstarfi m.a. varðandi efnisnotkun, sorpmeðhöndlun og pappírsnýtingu. Sérstakur lager er til staðar í prentsmiðjunni sem heldur utan um afskurð sem síðan er fullnýttur.

Stefna Prentmets í umhverfismálum er:

Að taka mið af gildandi stöðlum um umhverfismál við stjórn fyrirtækisins.

Að nota eftir því sem unnt er umhverfisvæn efni.

Að tæki sem notuð eru til framleiðslu taki sem minnsta orku.

Að stuðla að fullnýtingu úrgangs sem fellur til við framleiðslu.

Að halda skaðlegum efnum og úrgangi frá starfseminni.

Að skapa góð skilyrði fyrir starfsfólk til að framfylgja umhverfismarkmiðum. Starfsfólk er upplýst um það meðal annars í Prentmetsskólanum

Sjá nánar - http://prentmet.is/forsida/umokkur/prentmetsskolinn/

Að tryggja velferð starfsmanna og kappkosta að starfsumhverfi sé hreinlegt og heilsusamlegt