Stanzasafn
Reiknivél
Skil á efni
ftp svæði
Pósturinn er öflugt auglýsingablað sem dreifist um allt Vesturlandskjördæmi. Blaðið er í hentugu broti og hefur hlotið viðurkenningu frá auglýsendum og lesendum fyrir stílhreint útlit og góða prentun. Dreifingarsvæðið er Akranes, Borgarnes, Snæfellsnes, Búðardalur, Dalasýsla, Króksfjarðarnes, Kjalarnes og Kjós - auk allra sveita þar á milli og valdar sjoppur á sunnanverðum Vestfjörðum og norðvesturlandi.Dreifing fer fer fram á fimmtudögum allt árið og Pósturinn berst inná öll heimili og fyrirtæki á svæðinu og er upplagið alls 6800 eint. Fastir liðir eru í Póstinum er tengja lesendur samfélaginu. Fréttatengdir pistlar úr bæjarlífinu og frá dreifingarsvæðinu í heild birtast í hverri viku. Pósturinn kemur út á fimmtudögum vikulega allt árið. Skilafrestur auglýsinga er á hádegi á þriðjudögum. Skorin stærð Póstsins er 16 x 23 cm Prentflötur er 15,2 x 21,8 Blæðing má vera á heilsíðum (16 x 23 cm) + 3mm Forsíðan er í stærðinni 16 x 18,5 + 3mm blæði á kant. Síða í Póstinum skiptist í 3 dálka sem hver dálkur er 4.8 cm x 21.8 cm Fyrsta tölublað Póstsins kom út 14. maí 1998 og hefur umfangið aukist jafnt og þétt frá upphafi. Í dag er svo komið að Pósturinn er einn eftirtektarverðasti prentmiðillinn á sínu svæði. Auglýsingasíminn er 431-5600 og faxið 431-1804. Netfangið er posturinn@prentmet.is Prófaðu að auglýsa í Póstinum - Pósturinn er sterkur miðill á sínu svæði.....