Íslenska  English
Prenta |  Senda

Saga Prentmets


Prentmet var stofnað í apríl árið 1992 af hjónunum Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttir. Höfð voru þrjú höfuðmarkmið að leiðarljósi: Hraði, gæði og persónuleg þjónusta. Í upphafi var fyrirtækið í 100 fm leiguhúsnæði á Suðurlandsbraut 50. Þar fór fram öll undirbúningsvinna fyrir prentun, þ.e. hönnun, setning, umbrot og skönnun/litgreining og filmuvinnsla. Þá sá Prentmet einnig um að koma verkum til fullvinnslu í prentun og bókband hjá öðrum fyrirtækjum.

Í byrjun voru aðeins tveir starfsmenn hjá Prentmeti. Fyrirtækið fór þó fljótlega að færa út kvíarnar og starfsfólki fjölgaði smám saman. Vel var fylgst með öllum tækninýjungum og stöðugt var verið að fjárfesta í öflugri og hraðvirkari vélum.

Árið 1995 urðu umskipti í rekstri Prentmets þegar það keypti sína fyrstu prentvél. Um var að ræða fullkomna fimm lita prentvél af Roland gerð og var prentsalurinn í 200 fm húsnæði í Skeifunni 6. Þetta sama ár keypti Prentmet G.Ó. prent sem var stofnað af Guðmundi Óskarssyni, sem er framleiðslu-/gæðastjóri Prentmets. Einnig keypti Prentmet Prentverk Skapta Ólafssonar sem var stofnað 1971 af Skapta Ólafssyni prentara og söngvara. Skapti hefur einnig verið starfandi prentari í Prentmet síðan. Nú var Prentmet orðið alhliða prentsmiðja. Síðan hefur fyrirtækið vaxið mjög hratt og býr yfir afar fullkomnum og hra›virkum tækjum. Má þar nefna fullkomnustu stafrænu prentvélina á landinu og fjórar mjög fullkomnar offsetprentvélar.

Prentmet keypti Prentberg í Kópavogi og Prentverk Akraness í lok desember árið 2000.

Í janúar 2001 keypti Prentmet rekstur og 340 fm húsnæði Fjölritunarstofu Daniels Halldórssonar sem var í Skeifunni 6, á sömu hæð og Prentmet. Fjölritunarstofa Daníels var stofnuð árið 1927 af Daníel Halldórssyni og er elsta fjölritunarþjónusta á landinu.

Á haustdögum 1999 festi Prentmet kaup á 510 fermetra húsnæði í Skeifunni?6, í sama húsi og prentsalurinn, og flutti þangað alla starfsemi sína í febrúar 2000. þar var öll starfsemi Prentmets í 1300 fm eigið húsnæði þar til í desember 2002 og voru starfsmenn þá um 50 talsins.

Í mars 2002 keypti Prentmet Íslensku prentsmiðjuna ehf, öll tæki þess og búnað. Öll starfsemi Íslensku prentsmiðjunnar var flutt í húsnæði Prentmets að Skeifunni 6. Í maí keypti Prentmet fullkominn bókbandsbúnað frá Heidelberg. Nú gat Prentmet séð um alla fullvinnslu prentgripa án þess að senda þá úr húsi til undirverktaka.

Í desember 2002 flutti Prentmet alla starfsemi sína í glæsilegt 3800 fm atvinnuhúsnæði að Lynghálsi 1. Flutningar fóru aðallega fram helgina 20.–22. desember 2002. Húsnæðið var keypt af DeCode. Hans Petersen byggði þetta hús árið 1981 og var með starfsemi sína þar þangað til

1998 þegar DeCode keypti húsnæðið.

Föstudaginn 28. febrúar 2003 keypti Prentmet Félagsbókbandið-Bókfell, sem var stofnað árið 1988 af Einari Egilssyni forstjóra og Leifi Gunnarssyni verkstjóra. Félagsbókbandið-Bókfell hf. var stofnað úr tveimur fyrirtækjum, þ.e. Félagsbókbandinu, sem stofnað var árið 1903 af Guðmundi Gamalíelssyni, og Bókfell, sem stofnað var árið 1943 af Aðalsteini Sigurðarssyni, Gísla H. Friðbjarnarssyni, Guðmundi Kristjánssyni og þórhalli Bjarnarsyni.

Í maí 2003 keypti Prentmet nýja umbúðaprentvél. Um er að ræða 6 lita Man Roland 706 með tvöföldu lakkkerfi (Water Bace/UV). Prentformatið er 740x1040 mm og pappírsþykkt er 0,4-1,1 mm. Vélin er sérstaklega hönnuð fyrir umbúðaprentun þó að hún henti jafnframt allri venjulegri prentun.

Í maí 2003 keypti Prentmet einnig límingarvél og stansvél. Um er að ræða fullkomnustu tæki sinnar tegundar hérlendis til umbúðaframleiðslu.

Í ágúst 2006 keypti Prentmet Prentsmiðju Suðurlands sem stofnuð var árið 1957.


Öll fyrirtækin sem Prentmet hefur keypt eru komin undir nafn Prentmets og það er rekið Prentmet Vesturlands á Akranesi og Prentmet Suðurlands á Selfossi.

Með tilkomu aukins rýmis, nýrra tækja og fjölgun starfsfólks hefur þjónustustigið hækkað. Viðskiptavinir hafa beint samband við sinn tengil sem fylgir verkunum eftir. Öll undirbúningsvinna er unnin í nánu samstarfi við viðskiptavininn. Prentunin fer svo fram samkvæmt nýju skipulagi þar sem gæði haldast í hendur við skilvirkt framleiðsluferli og því afgreiðslutíminn stuttur.

Starfsmenn Prentmets eru um 130 talsins.

Prentmetsskólinn var stofnaður í september 2005. Markmið hans er að upplýsa starfsmenn Prentmets um starfsemi í öllum deildum fyrirtækisins, umhverfi, þjónustu og framleiðslu og að þeir geti orðið almennt góðir í að kynna fyrirtækið.

það er ljóst að Prentmet skipar nú stóran sess á prentmarkaðnum. Með því að hafa duglegt, vel þjálfað og vel menntað starfsfólk á fullkomnum og hraðvirkum vélum getur fyrirtækið boðið upp á hraða, gæði og persónulega þjónustu. Prentmet er nú með mestu breidd í prentun á Íslandi á einum stað og býður viðskiptavinum sínum upp á hágæða offstetprentun, stafræna prentun og umbúðaprentun.