Íslenska  English
Prenta |  Senda



Ýma tröllastelpa

Ýma tröllastelpa var sköpuð árið 2001 og makmiðið með henni er að gera eitthvað gott í þágu barna samfélaginu til heilla. Höfundur bókarinnar er Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir framkvæmdstj. starfsmanna- og markaðssviðs, en hún og eiginmaður hennar, Guðmundur Ragnar Guðmundsson framkvæmdastjóri eru eigendur Prentmets.

 





SOS-barnaþorpin

Prentmet styrkir og er með samstarfssamning við SOS barnaþorpin. Markmið þessa samnings að búa munaðarlausum og yfirgefnum börnum þessa heims betri framtíð. Starfsfólki Prentmet er velkomið að heimsækja SOS-barnaþorp í þessum löndum og kynna sér það starf sem þar er unnið. Skrifstofa barnaþorpanna á Íslandi hefur milligöngu um slíkar heimsóknir enda sé fyrirvarinn góður. SOS-barnaþorpin eru verðugur málstaður og við hvetjum fólk til að kynna sér þeirra starfsemi.

 



UMFÍ

Prentmet hefur verið ötull stuðningsaðili Ungmennafélags Íslands undanfarin ár. Innan UMFÍ er unnið að ræktun lýðs og lands um allt land með margvíslegum hætti, t.d. íþróttum, leiklist, skógrækt, erlendum samskiptum, málrækt, héraðsmótum og ýmsum skemmtunum. Forráðamenn Prentmets eru mjög ánægðir með samstarfssamninginn við UMFÍ og störf félagsins í þágu íslensku þjóðarinnar frá stofnun þess.