Stanzasafn
Reiknivél
Skil á efni
ftp svæði
Vinsæl kynningaraðferð á neytendamarkaði er með plakötum. Plaköt eru góð leið til að vekja athygli á litríkan hátt. Flestir þekkja kosti plakata og þekkja, að oft er þröng á þingi þar sem á að koma plakötum fyrir. Plaköt hanga gjarnan á veggjum, á matsölustöðum og öðrum fjölförnum stöðum og eru oftar en ekki innan um önnur plaköt frá samkeppnisaðilum. Því er mjög mikilvægt að þitt plakat skeri sig úr fjöldanum. Hágæða prentun skiptir því höfuðmáli, en fullkominn tækjakostur Prentmets og úrvals fagfólk skilar þér góðu verki , hvort sem er í offsetprentun eða stafrænni prentun.
Plaköt eru í mörgum stærðum, en algengustu stærðirnar eru A3, A2 og A1, og renna þau á stuttum tíma í gegnum vélarnar okkar. Við bjóðum hagstætt verð og skjóta afgreiðslu á plakötum.