Stanzasafn
Reiknivél
Skil á efni
ftp svæði
Innihaldið skiptir máli ? Það gera umbúðirnar líka.
Í harðri samkeppni skipa umbúðir mikilvægt hlutverk í markaðssetningu vöru með tilliti til framsetningar, auglýsingagildis og sölu. Notagildi umbúða hefur teygt anga sína inn á auglýsingamarkaðinn í formi markpósts við hlið hins almenna prentverks.
Því hefur Prentmet gert enn betur og bætt við þjónustu sína umbúðaframleiðslu úr kartoni og fjárfest í fullkomnum nýjum vélbúnaði til þeirrar framleiðslu, sem tryggir kaupandanum mestu nákvæmni og bestu gæði.
Prentmet býður alhliða ráðgjöf til að mæta fjölbreyttum óskum viðskiptavina sinna varðandi umbúðir, sbr. vöruþróun, formhönnun, prentun, hráefnisnotkun, vörumeðhöndlun, nýtingu í flutningum og síðast en ekki síst styttri afhendingartíma og hagstætt verð.
Prentmet uppfyllir öll skilyrði Heilbrigðiseftirlitsins varðandi hreinlæti og heilbrigðismál við framleiðslu matvælaumbúða.
Mörg af stærstu og framsæknustu fyrirtækjum landsins eru viðskiptavinir Prentmets, þar sem hraði, gæði og persónuleg þjónusta skiptir öllu máli.