Íslenska  English
Prenta |  Senda

Ársskýrslur


Flest fólk í viðskiptaheiminum veit að vönduð ársskýrsla verður seint ofmetin. Vönduð framsetning ársskýrslu jafnast á við besta kynningarefni fyrirtækisins. Ársskýrslan veitir þarfar upplýsingar og skapar góða ímynd. Hjá okkur er mikil reynsla og miklir möguleikar í prentun og frágangi á ársskýrslum, bæði í stafrænni prentun og offsetprentun. Við afgreiðum hágæða ársskýrslur í stórum sem smáum upplögum. Einnig er hönnun, uppsetning og umbrot ársskýrslunnar hluti af þjónustunni í hönnunar- og umbrotsdeild Prentmets.