Íslenska  English
Prenta |  Senda

Ráðstefnugögn


Fjölmörg fyrirtæki standa fyrir ráðstefnum og kynningarfundum og bjóða þá til sín viðskiptavinum og velunnurum. Slíkir viðburðir eru haldnir til þess að veita upplýsingar og miðla þekkingu en jafnframt að vekja athygli á athyglisverðum vörutegundum og þjónustuleiðum og almennt að styrkja ímynd fyrirtækisins. Stóra spurningin er hvað skilur viðburðurinn eftir sig annað en minningu og hvatningu til viðskipta? Svarið er ráðstefnugögn. Ráðstefnugögn fylgir gestinum frá viðburðinum og heim á skrifstofu þar sem þau lifa áfram sem auglýsing og áminning um viðskiptin.

Hvaða ráðstefnugögn get ég boðið mínum gestum?


Folder

Folder er umbúðir utanum þekkinguna sem þú ert að miðla en hann getur jafnframt virkað sem auglýsing. Hann er jafn mikilvægur ráðstefnum líkt og matvælapokinn er nauðsynlegur í Hagkaup. Við eigum foldera í öllum stærðum og gerðum og getum sérsniðið þá að þínum þörfum.

Skrifblokkir

Gefðu gestum þínum tækifæri á að glósa til að muna þann fróðleik sem þú ert að miðla. Skrifblokkin lifir áfram sem áminning um þitt fyrirtæki og fróðleikinn sem þú miðlaðir. Láttu hugmyndirnar sem þú gefur flæða áfram út á markaðinn en láttu það flæða á miðum merktum þínu fyrirtæki.

Bæklingar og einblöðungar

Á ráðstefnum eru gestir komnir tilbúnir að láta mata sig á hugmyndum og upplýsingum. Þetta er ekki sama baráttan og auglýsingaathyglin í fjölmiðlum. Á ráðstefnunni er þinn markhópur samankominn og þeir bíða eftir upplýsingum. Sendu þeim réttu skilaboðin á snyrtilegum bæklingum og einblöðungum.

Nafnspjöld og kveðjuspjöld

Folderar hjá Prentmet eru með tilbúnu stæði fyrir nafnspjöld. Það er ekki nóg að skilja eftir réttu skilaboðin og réttu hugmyndirnar. Nafnspjaldið er leiðarvísirinn á hvert viðskiptavinurinn leitar næst.

Svarseðlar

Margir nýta ráðstefnur til að skjóta inn stuttum skoðannakönnunum þótt það sé ekki nema aðeins til að kanna ánægju gesta með ráðstefnuna sjálfa. Á sumum ráðstefnum má sjá þetta prentað inní ráðstefnubæklinginn sjálfan en okkur í Prentmet finnst það afleit hugmynd. Bæklingurinn á að fylgja gestinum heim í hús. Einfaldir svarseðlar þurfa ekki að vera dýrir í framleiðslu og við getum bæði fjölritað og prentað slíka seðla.

Ópal pakkar

Öllum finnst gaman að fá gjöf, ráðstefnugestum líka. Ópal pakki fangar alltaf athygli og það finnst nánast öllum landsmönnum Ópal gott. Pakkinn lifir svo áfram í vasanum sem auglýsing þótt það séu örugglega ekki miklar líkur á að hann lifi lengi þar sem nammið er fljótt að klárast. Formhönnuðir og sölumenn Prentmets geta aðstoðað þig við að finna réttu lausnina.

CD og DVD

Sumir ráðstefnuhaldarar kjósa að miðla gögnum og upplýsingum með margmiðlunardiskum eða öðrum slíkum miðlum. Við getum framleitt slík hulstur í Prentmet. Skilaðu þínu efni fagmannlega út á markaðinn.