Íslenska  English
Prenta |  Senda

Umslög


Fallegt umslag sem kynnir vöru og þjónustu fyrirtækisins vekur athygli. Það verður sífellt algengara að fyrirtæki láti prenta umslög í fullum lit og því hefur Prentmet komið sér upp öflugum vélakosti til þess að annast slíka prentun. Umslag heitir það þegar það er opnað á langhlið, en pokaumslag ef það er opnað á skammhlið. Yfirleitt eru umslög sjálflímandi eða með límborða, en ef um umslög til vélpökkunar er að ræða, eru þau vatnslímd. Auk hefðbundinna umslaga bjóðum við upp á margar gerðir og stærðir af frumlegum og fallegum umslögum fyrir ýmiskonar tækifæri, boðskort, markpóst og þess háttar. Umslög eru fáanleg í mörgum stærðum og gerðum og hér eru þær helstu:

Algengustu stærðir umslaga
B4 umslög 255 x 354 mm
B5 umslög 176 x 250 mm
C4 umslög 229 x 324 mm
C5 umslög 162 x 229 mm
C6 umslög 114 x 162 mm
E65 umslög 112 x 220 mm
M65 umslög 110 x 220 mm