Skil á efni
Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga við skil á prentgögnum fyrir umbúðir
1. Hafðu samband við okkur áður en þú byrjar að hanna grafíkina, hvort að við eigum ekki til stansateikningu fyrir þig.
2. Láttu númerið á teikningunni fylgja með þegar grafíkinni er skilað inn, það auðveldar okkur að finna rétta stansinn.
3. Hafðu stansateikninguna á sér layer í skjalinu og læstu honum, búðu til nýjan layer og hannaðu grafíkina á hann.
4. Passaðu að vista prentskjölin þannig að stansateikninguna sé hægt að fjarlægja, við viljum ekki prenta hana með.
5. Hafðu 3mm blæðingar út fyrir hnífa eins og á hefðbundnu prentverki.
6. Stansateikningum má ekki breyta á nokkurn hátt. Öll breyting kostar smíði á nýjum stansi.
Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú hefur einhverjar spurningar.
Hanna hanna@prentmet.is S: 5 600 634, Davíð david@prentmet.is S: 5 600 638






