Íslenska  English
Prenta |  Senda

Bækur


Ætlar þú að gefa út bók og vantar þig aðstoð?

Við hér í Prentmeti státum af úrvals fagfólki, sem er sérhæft, þjálfað og menntað í hönnun, umbroti, prentun og bókbandi á bókinni þinni. Bókaprentun er vandmeðfarið ferli þar sem huga þarf að hagkvæmni og fallegu og sölulegu útliti. Við kappkostum að veita þér bestu þjónustu og leiðsögn og að skila þér góðum bókum. Meðal verkefna sem hafa verið unnin hjá okkur eru listaverkabækur, ævisögur, fræðibækur, skáldsögur, ljóðabækur, dagbækur og fleira. Stolt okkar eru listaverkabækurnar sem við höfum prentað, en þær krefjast bæði hágæða prentunar og fallegs og vel unnins bókbands. Listaverkabækur sem við höfum unnið eru td. Eggert Pétursson listmálari, Stóð Þuríðar Sigurðardóttur, Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist og bók Gjörningaklúbbsins.

Bókavinnsla okkar gefur mikla möguleika. Við bjóðum alhliða bókavinnslu í fullkominni framleiðslulínu. Hvort sem það eru kiljur eða harðspjaldabækur, litlar eða stórar bækur, þá leysum verkið vel af hendi. Við bjóðum einnig frumlega unnar kápur með ýmiskonar lakkáferð, hlutalökkun, upphleypingu, þrykkingu, gyllingu og stönsun. Við höfum jafnan mikið úrval af pappír og bókbandsefnum.

Helstu bókarstærðir
Skorin stærð bókar án spjalda

Crown 124 x 182 mm
Tvöf. Crown 184 x 245 mm
Demy 137 x 211 mm
Din A5 144 x206 mm
Royal 153 x 230 mm
Super Royal 170 x 240 mm

Viðskiptastjórar okkar aðstoða þig fúslega við að finna réttu lausnina fyrir bókina þína.