Þið eruð komin í örugga höfn í viðskiptum við Prentmet Odda

Við kappkostum að veita öllum viðskiptavinum fulla athygli, stórum sem smáum, og viljum rækta sambandið. Loforð okkar eru raunhæf, og við stöndum við þau. Við viljum að samskiptin séu óþvinguð og komum hreint fram ef vandamál koma í ljós.

Þarfir viðskiptavinarins eru í fyrirrúmi. Við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt kostur er, hvort sem um er að ræða einfaldar eða flóknari tilboðsbeiðnum.

Við berum virðingu fyrir störfum, skoðunum og tíma hvert annars, og gleymum því aldrei að við erum í sama liði.

Vinnustaðurinn á að vera okkur til sóma hvað snyrtimennsku áhrærir og viðskiptavinum notalegur.

Vandamál fela í sér tækifæri til að gera enn betur og við viljum leysa þau þannig að sambandið við viðskiptavininn styrkist og batni.

Hönnunarvefur

Hönnunarvefur Prentmets Odda býður viðskiptavinum okkar upp á setja upp nafnspjöld, reikninga, umslög, bréfsefni, dagatöl, kort, myndaalbúm o.fl. og skila því beint inn til prentunar. Þú getur líka hlaðið niður hönnun frá hönnuði en til að kóróna þjónustuna bjóðum við uppá þúsundir hannana þar sem þú getur sett þínar upplýsingar inn.

Meiri upplýsingar
Business woman working on laptop
Litir

Við setjum upp falleg prentverk

Hjá Prentmet Odda starfa sérfræðingar í hönnun og uppsetningu og framleiðslu prentverka. Sérþekking í prentun nær til alls sem lítur að kilju- og tímaritaprentun, pappírsgerð, litanotkun og myndvinnslu. Sérfræðingar okkar eru hugmyndaríkir, óhræddir að feta ótroðnar slóðir, tileinka sér nýjungar og nálgast verkefnin á skapandi hátt. Hugmyndavinna og hönnun miðar að því að viðskiptavinirnir fái í hendur fallega vöru sem sker sig úr.

Miklu máli skiptir fyrir bestu útkomu á prentverki að frágangur og vistun prentskjala sé réttur. Því biðjum við viðskiptavini sem koma með fullhönnuð verk til prentunar, hvort sem það á við kiljur, bæklinga eða umbúðir, að kynna sér vel, áður en vinna hefst við hönnun, hvernig ganga skal frá skjölum til prentunar undir skil á efni eða hafa samband við ráðgjafa okkar og fá upplýsingar.

Skil á efni
Prentráðgjafi

Dreifing

Prentmet Oddi getur tekið að sér að koma vörunum þínum til dreifingaraðila þegar dreifa á víða um land, til Póstsins eða annarra flutningsaðila. Einnig getum við keyrt út vörur á höfuðborgarsvæðið sé þess óskað sérstaklega.

Nánari upplýsingar gefa viðskiptastjórar
Vörubíll Prentmet Odda