Það hefur sýnt sig að vel upplýstur starfsmaður hefur meiri starfsánægju og skilar betri starfsanda á vinnustað. Mjög mikilvægt er að allir hafi á tilfinningunni að þeirra störf séu nauðsynlegur hlekkur í keðju fyrirtækisins, að virðing sé borin fyrir störfum innbyrðis og að nokkur innsýn sé í verkefni samstarfsfólks. Þetta er eigendum Prentmets vel ljóst og því hefur verið stofnaður Prentmetsskóli með eftirfarandi markmið:

• Að upplýsa starfsmenn um starfsemi, umhverfi, þjónustu og framleiðslu fyrirtækisins.
• Að starfsmaður fái svör við 15 mikilvægustu spurningunum í hverri deild fyrir sig.
• Að starfsmaður geti orðið almennt góður í að kynna fyrirtækið.

Hvað stendur M E T fyrir í Prent­metsskólanum?
M Menntun – Miðlun þekkingar – Metnaður.
E Endurmenntun – Endurgjöf.
T Taktur við tímann í þekkingu og þjónustu – Tækni – Tækifæri til að þroskast og þróast.

Er skólaskylda?
Allir starfsmenn PM sækja skólann. Ekki er alltaf sama fólkið í námshópi í hverri fræðslustöð. Reynt er að færa fólk til milli stöðva svo það kynnist sem flestum á vinnustaðnum. Það þarf því heldur ekki að bindast alltaf saman hópnum og er hægt þar af leiðandi að taka skólann eftir því sem hentar hverjum og einum, deildinni og fyrirtækinu. Eftir að starfsmaður hefur fengið kynningu á öllum deildum PM fær hann kynningu á framleiðsluferli vöru. Í lokin heldur hann létta kynningarræðu um PM. Starfsmenn fá viðurkenningarskjal og eru þá titlaðir sem sendiherrar PM.

Hvert er mikilvægi starfsmannaskólans ?
„Það er mikilvægt að allir starfsmennirnir séu vel upplýstir um starfsemina; hvað við gerum, hvaða gildi PM hefur, hvert við stefnum o.s.frv., og að þeir geti kynnt fyrirtækið með stolti. Að miðla þekkingu skiptir miklu máli. Það er starfsmanni í raun afar mikilvægt eftir að hann hefur farið á námskeið á okkar vegum, að viðkomandi geti síðan miðlað kunnáttu sinni til annarra starfsmanna. Þannig verður öll þekking góð fjárfesting fyrir fyrirtækið,“ segir Ingibjörg Steinunn, að lokum.

Þau sem unnu að námsefni Prentmetsskólans. Efri röð: Jörundur Albert Jónsson, Ari Jónsson, Árni Björn Skaftason, Magnús Arnarsson, Hörður Sigurbjarnason, Ingibjörg Steinþórsdóttir, Jón Þór Guðmundsson, Oddgeir Gunnarsson, Hólmfríður Edvardsdóttir. Neðri röð: Guðmundur Óskar Óskarsson, Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir, Guðmundur Ragnar Guðmundsson og Margrét Ágústsdóttir.