Dagatal Prentmet Odda 2024

Dagatal fyrir árið 2024 er komið út. Að þessu sinni er viðfangsefnið í dagatalinu sjávarlíf og eru allar myndirnar teknar við Íslandsstrendur. Myndirnar tók ljósmyndarinn Erlendur Bogason (www.sjavarlif.is) Myndirnar eru einstaklega litríkar og fallegar.

Einstaklingar og fyrirtæki geta fengið eitt dagatal frítt með því að sækja það sjálfir til okkar í Reykjavík eða í útibúin okkar á Selfossi eða Akureyri.

Til að panta fleiri en eitt dagatal getur þú smellt á „Panta dagatal Prentmet Odda 2024“ hér fyrir neðan eða haft samband við sölumenn okkar á sala@prentmetoddi.is eða í síma 5 600 600.

Panta dagatal Prentmet Odda 2024